2. bekkur HÓ styður landsliðið

Krakkarnir í 2. bekk gerðu sér glaðan dag á þriðjudagsmorguninn og fögnuðu því að karlalandsliðið tryggði sér sæti á HM í Rússlandi á næsta ári. Það var mikil stemning í bekknum og fengu allir íslenska fánann málaðan á sig og sungu saman og höfðu gaman.